Sogsbakki
Við hjá Pallasmíði Suðurlands fengum það verkefni að koma í Sogsbakka og ráðast í umfangsmikla pallahreinsun á um 100 fermetra timburpalli sem umlykur húsið. Markmiðið var upphaflega að endurnýja ásýnd pallsins með vönduðum þrifum áður en borið yrði á hann með pallaolíu.
Pallurinn var þrifinn með sérhæfðri pallasápu og háþrýstiþvotti sem fjarlægði óhreinindi, gróður og veðrun sem safnast hafði upp í timbrinu. Þegar framkvæmdirnar voru hafnar ákvað verkkaupi að nýta tækifærið og ráðast í frekari endurbætur á útisvæðinu.
Við klæddum allt grindverk sem fyrir var með nýrri liggjandi skjólveggjaklæðningu, sem gaf pallinum nútímalegra yfirbragð og bætti bæði útlit og skjól. Í framhaldinu vorum við fengin til að sjá um smíði á nýjum 50 fermetra sólpalli fyrir framan húsið við heimkeyrsluna. Pallurinn breytti ásýnd hússins verulega og stækkaði útisvæði sem til umráða var. Á nýja pallinum fær verkkaupi kvöldsólina sem heldur betur er hægt að njóta í fallega landslaginu í Grímsnesi.
Auk pallasmíðinnar sinntum við ýmsum smærri framkvæmdum á svæðinu, meðal annars smíðuðum við lítið ruslatunnuskýli sem fellur vel að heildarútlitinu og hjálpar til við að halda lóðinni snyrtilegri.
Þetta verkefni sýnir vel hvernig lítil framkvæmd getur þróast yfir í stærra og meira umfang.
Hjá Pallasmíði Suðurlands leggjum við áherslu á fagleg vinnubrögð, vandað efnisval og lausnir sem endast í íslenskri veðráttu.
Ef þú ert að leita að fyrirtæki sem sér um smíði sólpalla, viðhald timburpalla, skjólveggi, grindverk eða önnur almenn verkefni á útisvæðum þá erum við alltaf tilbúin að skoða verkefnið með þér.
Hér má sjá nokkrar myndir af verkefninu frá Sogsbakka





























