Kolbeinsmýri

Við hjá Pallasmíði Suðurlands fengum það verkefni að smíða nýjan tæplega 40 fermetra sólpall við raðhús í Kolbeinsmýri á Seltjarnarnesi. Markmiðið var að skapa fallegt og notalegt útisvæði sem tengir húsið betur við garðinn og nýtist fjölskyldunni allt sumarið.

Pallurinn var hannaður þannig að hægt væri að ganga beint úr sólstofunni út á pallinn, sem skapar náttúrulega tengingu milli inni- og útirýmis. Með þessari lausn verður útisvæðið hluti af daglegri notkun heimilisins og hentar jafnt til afslöppunar, grillveislu eða annarar samveru.

Til að auðvelda aðgengi að garðinum smíðuðum við einnig breitt niðurstig (tröppu) sem liggur niður á grasflötina. Trappan fellur vel að pallinum og gefur útisvæðinu fallegt og heildstætt yfirbragð.

Við leggjum alltaf áherslu á vandaða pallasmíði, nákvæman frágang og gæðaefni sem standast íslenskar veðuraðstæður.

Niðurstaðan í Kolbeinsmýri er fallegur og endingargóður timburpallur sem eykur bæði notagildi og verðmæti eignarinnar.

Hvort sem um er að ræða smíði sólpalls, timburpalls, verandar,  skjólveggja eða annarra framkvæmda á útisvæðum þá leggur Pallasmíði Suðurlands metnað sinn í að skila faglegri vinnu sem stenst væntingar verkkaupa.


Hér eru nokkrar myndir af verkinu við Kolbeinsmýri