Skógarhlíð

Pallasmíði Suðurlands fékk þann heiður að smíða þetta glæsilega grindverk í Skógarhlíð.

Verkið fólst í um 100 lengdarmetrum af grindverki, klæddu beggja vegna með máluðu byggingartimbri. Undirstöðurnar voru niðursteyptir galvaniseraðir staurar en þar sem grindverkið tengdist steyptum kantstein voru staurar soðnir á stálplötur sem síðan voru boltaðar niður í steypuna.

Framkvæmdir hófust í nóvember 2025 og lauk fyrri áfanga 12. janúar 2026.

Í lok apríl 2026 vorum við síðan fengin til að lengja grindverkið um tæpa 40 metra.

Þá var ekkert annað í stöðunni en að taka penslana fram á ný og hefjast handa við að mála klæðningarborðin.

Viðbótarverkinu lauk formlega í júní 2026.

Við viljum þakka Jarðval fyrir traustið og ánægjulegt samstarf. Jafnframt óskum við Reykjavíkurborg til hamingju með glæsilegt grindverk sem setur fallegan svip á Skógarhlíðina.