Þingdalur
Pallasmíði Suðurlands fékk það verkefni að smíða glæsilegan tæplega 90 fermetra sólpall við Þingdal í Villingarholti. Pallurinn var hannaður með það að markmiði að skapa rúmgott og fallegt útisvæði sem nýtir einstakt útsýni yfir sveitina og myndar fullkomið umhverfi fyrir útiveru og afslöppun.
Einn af stærstu þáttum verkefnisins var að fella heitan pott niður í pallinn sem var þegar búið að koma fyrir á svæðinu þar sem pallurinn átti að koma.
Þetta var jafnframt í fyrsta sinn sem við hjá Pallasmíði Suðurlands byggðum pall á dverga undirstöðum. Sú undirstöðulausn hentaði einstaklega vel aðstæðum á svæðinu en gerði verkefnið jafnframt meira krefjandi. Mikil nákvæmni þurfti við staðsetningu undirstaðna og uppbyggingu burðarvirkisins til að tryggja styrk, stöðugleika og fallegan frágang.
Burðarvirki pallsins var byggt með einfaldri grindaruppbyggingu í stað hefðbundinnar tvöfaldrar grindar með dregurum og leiðurum. Sú lausn krafðist mun meiri nákvæmni við smíðina, þar sem millispil voru sett á um 50–60 cm millibili á milli dregara og öll grindin vinkluð saman. Þessi aðferð gerir smíðina bæði tímafrekari og flóknari en hefðbundna uppbyggingu, en skilar jafnframt sterku og stöðugu burðarvirki þegar rétt er að verki staðið.
Annar þáttur sem gerði verkefnið krefjandi var að pallurinn var ekki hefðbundinn ferhyrningur. Lögun hans var hönnuð þannig að hún fylgdi landslaginu sem kallaði á nákvæmar mælingar, sérsniðna grindaruppbyggingu og vandvirkni við uppsetningu. Með því fellur pallurinn mun betur að umhverfinu og nýtir lóðina á eðlilegan hátt.
Útkoman er rúmgóður timburpallur sem tengir saman útisvæðið á fallegan hátt með niðurfelldum heitum potti og stórkostlegu útsýni.
Ef þú ert að leita að fyrirtæki sem sérhæfir sig í pallasmíði, smíði sólpalla, heitapottsgrindum, timburpöllum eða öðrum sérlausnum fyrir útisvæði, þá er Pallasmíði Suðurlands tilbúið að aðstoða þig við að gera hugmyndir þínar að veruleika.
Hér eru nokkrar myndir frá verkefninu í Þingdal.
Verkið er enn í vinnslu og á eftir að ljúka lokafrágangi. Fleiri myndir verða birtar þegar verkefnið hefur verið fullklárað.














